29.03.2009 14:59:51 / 24rhs

Mig dreymdi í nótt að ég hefði skrifað blogg sem hefði fengið þvílíka athygli fyrir djarfleika og ófeimni við tjáningu. B2, mbl, visir.is og det hele rauðloguðu útaf því.
Þetta er ekki svoleiðis blogg.

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 21:14:09 / 24rhs

Ég var búin að skrifa helling hérna. Helling um símasamband(sleysi) hérna heima og hvernig það hefur skyndilega batnað til muna. Skrifa spekúleringar um það hvort það væri einungis bættu símasambandi að þakka eða hvort Nokia-síminn hans afa Böðvars, sem ég nota núna, hafi eitthvað að gera með þessa óvæntu ánægju. Hann er jú ekki samlokusími, ekki með litaskjá, myndavél né dagatal. Allavega hef ég ekki fundið það síðastnefnda, en það leynist kannski einhversstaðar þarna í asnalega flókinni valmynd miðað við einstaklega einfaldan síma.

En svo, eftir að ég hafði skrifað dágóðan orðafjölda, missti ég dampinn. Ég varð áhugalaus, fannst þetta asnalegt, það vantaði neistann. Í bræði minni strokaði ég allt út, stóð upp og gekk burt frá tölvunni. Skömmu seinna kom ég aftur og fann kitlið í puttunum til að segja samt frá þessu, áhuginn stigmagnaðist, mig langaði. Og hvað gerðist þá? Jú, ég skrifaði stytta útgáfu af annars döll bloggi. Og var miklu sáttari.
Þetta er rosaleg góð byrjun á dæmisögu. Hvernig dæmisögu veit ég ekki, hver og einn getur örugglega túlkað þetta á sinn hátt, og Miskunnsami samverjinn (hét hún það ekki annars?) myndi blikna við hliðina á útkomunni.

Ókei, hvaða kjaftæði er ég eiginlega að framleiða hérna? Ég get svo svarið það. Á morgun brestur suðurferð á. Ef þú veist um einhvern sem ætlar að keyra suður á föstudaginn, seinni partinn, endilega láttu mig vita með því að kommenta eða senda mér sms í 8467372. Bryndís verður nefnilega eiginlega rosalega að komast suður líka, og hún kemst ekki fyrr en seinnipart föstudags.

Og lunga? Ég held það sé helgina 18.-19.júlí. Held.

» 2 hafa sagt sína skoðun