07.12.2007 12:01:51 / 24rhs

Ahh

Ég ætla heim um helgina. Til að vinna, bæði í kvöld og á morgun, hitta mömmu, pabba, val, afa, borða nýtt laufabrauð og hugsa. Ég held þetta stefni í ágætis helgi. Kem endurnærð á sunnudaginn, eða svona uþb endurnærð. Ég held ég þurfi líka að fara að gera eitthvað ef ég ætla að halda þessu bloggi lifandi. Kemur í ljós hvort það tekst.

Annars langar mig að segja takk fyrir bestu árshátíð sem ég hef farið á, sl.föstudag. Og já, ég fór næstum að gráta þegar ég gekk inn í salinn og allir stóðu og klöppuðu fyrir okkur í 4.bekk. Fékk tár í augun og smá kökk. Emotional eða? Skreytinganefndin stóð sig líka svo vel, kynntist alveg hellingi af skemmtilegu fólki þar. Skreytingarnar eiga svo að hanga uppi þangað til á sunnudaginn því það á að nota þær á morgun, þegar tónleikar Garðars Thors Cortes eru í höllinni. Ef að það er ekki hrós þá veit ég ekki hvað!

En nú er ég farin heim í sveitina fögru:)


» 8 hafa sagt sína skoðun