31.12.2005 14:35:13 / 24rhs

Nýtt ár, allt nýtt eða?

Nýtt ár er að skella á eftir um það bil 10 tíma. Ég fæ alltaf svona smá hroll við tilhugsunina að gamla árið sé að verða búið og aldrei það komi tilbaka eins og sungið er. Finnst það alltaf smá sorglegt. Árið 2005 er alveg að verða búið og árið 2006 er á leiðinni á hraðri siglingu. Finnst svona eins og árið 2006 geti með engu móti orðið eins skemmtilegt, hrædd um að góðu hlutirnir sem gerðust á þessu ári geti ekki gerst á næsta. En hver veit. Kannski verður 2006 bara enn betra.

2005 var alveg hreint bara ágætisár. Sennilega eitt skemmtilegasta ár sem ég hef lifað:) Frá janúar til byrjun júní fór náttúrulega í að klára 1.bekk í MA og það var svooo gaman! Maður hélt áfram að kynnast fólki og eignast nýja vini en aðrir ákváðu að breyta um stefnu. Á þessari önn kynntist ég stelpunum á 1107 og fylgihlutum þeirra, a.k.a. Tinna, Dagný, Eygló og Rannveig. Strákarnir á 1211 voru dregnir út í fótbolta og þá kynntist maður þeim. Hannes og Hemmi bestu vinir og félagar. Þá sá maður líka Didda bregða fyrir:) Þvílík heppni sem hefur svifið yfir manni þegar maður kynntist þessu fólki! Böðlapartýið var haldið í febrúar, Birting var þarna í mars eða apríl og fokk var gaman þá eða? Svo komu prófin og manni tókst að ná öllu þá.

Svo tók sumarið við, skemmtilegra sumar hef ég ekki lifað held ég bara! Það var alveg geeeeðveikt í Seli, alltaf eitthvað að gera og maður eignaðist nýja vini. Eygló kom til mín eina helgi og það var sko góóóð helgi. Þá fann ég sko að að ég hafði eignast ótrúlega góða vinkonu. Svo leið nú að hausti, Jóhanna stungin af til Jersey og Sólveig með, og allir hættu að vinna...nema Ragnhildur og Vallý:) og kokkarnir auðvitað.

Um miðjan september kom þó að því að vinnan hætti og skólinn tók við á ný með nýjum bekk og nýju herbergi, nýjum MA-ingum og nýjum VMA-ingum á vistinni. Og ójá, maður var ekki lengur BUSI! Ljúft ójá! Bekkurinn vandist, herbergið líka og ekkert smá frábært að hafa 2 af bestu vinkonum sínum við hliðina og á móti sér. Þetta haust var engin undantekning frá öðrum árstíðum, maður kynntist nýju fólki og það hefur haft vissar afleiðingar, svona eins og það að ég tók frosk með mér heim um jólin sem ég á ekki. Í desember fór Arnþór svo í aðgerðina, loksins. Hann er algjör hetja. Nú bíður maður bara eftir að honum batni og þó að það taki einhvern tíma þá verður það svo gaman:)

Slægjuballið kom og fór, jújú það er nú meira hvað það er endalaust hægt að tala um það, hin og þessi partý komu einnig og fóru sennilega líka, ýmsir aðrir komu.. og fóru. Oddvitakvöld voru tíð og árshátíðin var haldin með pompi og pragt 1.des, þá var sko gaman! Það er svo gaman að vera svona fínn þegar allir aðrir eru fínir og allir ákveðnir í að skemmta sér. Rúnturinn var stundaður mikið og ýmislegt óvænt gerðist þar. Ahahaha Arna og Magnea, muniði þegar ég blikkaði (með ljósunum) ónefndan ungan dreng? Úff það var fyndið.. Ytri-víkur partý 2.G var haldið um miðjan desember, var stuð eða hvað? Ójá.

Það sem stendur uppúr á þessu ári er klárlega vinirnir, djamm, óvæntir atburðir og margt fleira. Og þó að ég telji upp nýju vinina, þá eru þessir gömlu/eldri engan veginn af lakari taginu og þið vitið það!;) Það er ábyggilega eitthvað sem ég er að gleyma frá þessu ári, en það er þarna einhvers staðar í heilanum það er kannski grafið en engan veginn gleymt. En jæja, þetta er nú orðið nógu langt.

Gleðilegt nýtt ár og takk kærlega fyrir allt á því gamla. Hlakka til að byrja það nýja með ykkur:):*

Ragnhildur Hólm


» 14 hafa sagt sína skoðun

27.12.2005 13:31:10 / 24rhs

Gleðileg jólin

Nú eru þau komin og ekkert nema gott að segja um það. Ég þakka öll smsin sem ég fékk, sum komu verulega á óvart en svona skemmtilega, og önnur voru alveg ótrúlega falleg og ég er alveg rosalega ánægð að eiga svona frábæra vini:)

Nú, aðfangadagskvöld rann upp eins og hvert annað kvöld og eftir góðagóða matinn voru pakkarnir rifnir upp. 3 bækur fékk ég, enda eru engin jól ef maður fær engar bækur, útvarpsvekjara fékk ég eitt stykki. Vonandi hjálpar hann mér eitthvað að vakna, annars á ég náttúrulega alltaf hana Dagný mína, hún er vekjarinn minn og klárlega besti vekjari í heimi!;) Náttbuxur fékk ég frá elskunum mínum, þeim Örnu og Magneu, og ég hef varla farið úr þeim síðan ég fékk þær. Rétt skrapp úr þeim fyrir messuna á jóladag. Puma ilmvatn og litla tösku fékk ég líka, geeeeggjað þar sem ég var að verða búin með mitt gamla. Hálsmen fékk ég líka, það er sjúkt flott. Svo má segja að ég hafi fengið body shop í heild sinni, ekkert nema gott við það!:D Svo er nú sitthvað fleira þarna inná milli, ekki það að það skipti minna máli, ég bara vil ekki þreyta lesendur á þessari upptalningu. Tveimur hlutum ætla ég þó að bæta við! Það er dagatal fyrir árið 2006, og myndirnar í því eru sko ekki af verra taginu, það er hann Orlando Bloom sem prýðir síður dagatalsins. Sólheimabrosið sem kom á mig þegar ég opnaði pakkann var rooosalegt! En núnú, þá er ein eftir. Þá gjöf fékk ég frá ömmu og afa, bestu í heimi, en það er i-pod frá Samsung. Rooooosalegur í einu orði sagt! Hann er æði, á bara eftir að finna nafn á kvikindið.

En svo við látum þessari upptalningu lokið þá er það hæst í fréttum að ég er að fara á jólaball með bróður mínum þar sem að foreldrar mínir eru of uppteknir við að bora í nefið á sér að þau sjá sér ekki fært að fara með honum. Þetta verður ábyggilega ágætt, að minnsta kosti er flugeldasýning á eftir. Jújú og gleymum nú ekki jólasveinunum og gottinu þeirra. Spurning um að sníkja poka frá þeim?

Ég er farin að hafa stórar áhyggjur af draumunum sem mig dreymir á næturna hérna heima. Þetta er ekki eðlilegt! Mig dreymir svo ruglaða drauma að það er vangefið. Ég ætla nú bara rétt að vona að draumar séu ekki eitthvað svona sem maður vill en maður verður ekki var við af því þetta býr í undirmeðvitundinni eða eitthvað. Þá held ég að heilinn í mér sé sýktur af einhverju rugli. Ég er engan veginn að grínast með þetta. og heldur ekki með það að það er verið að sýna myndband á rúv með britney spears sem kallast megamix. Það er semsagt samansurg af vinsælustu lögunum hennar. Herre gud...

En já! Ég setti myndir inn á myndasíðuna mína í gær, myndir frá því á vistinni í fyrra og Ýdölum:D Tjékkitát.

En já ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.

Ragnhildur


» 10 hafa sagt sína skoðun

23.12.2005 15:25:20 / 24rhs

Til hammó með ammó

Eygló á afmæli í dag, til hamingju með það elskan mín:) Í dag er líka bara einn dagur í aðfangadag og í dag kemur Jóhanna líka heim, hún er meira að segja bara örugglega á leiðinni frá Akureyri núna:D Núnú, síðan síðast hefur lítið gerst. Jújú ég er komin í jólafrí, langþráð jólafrííí... Nema hvað að ég þyrfti eiginlega að vera að læra núna, þar sem blessuð prófin eru eftir jólafrí. Það er nú reyndar gaman (eða hvað?) að segja frá því að ég fór í bað í gær, jújú slíkt kemur reyndar fyrir, og las stærðfræði í staðinn fyrir einhverja uppbyggilega unglingabók. Í hvað stefni ég eiginlega? Reyndar er ég viss um að þetta á eftir að minnka samviskubit mitt eftir jól og áramót, því þegar ég átta mig á því að ég hef ekki lært neitt þá get ég hugsað ´jújú! hvað með þegar ég las stærðfræðina í baði?´ og þá líður mér miklu betur. Skemmtilegar vangaveltur þetta.

Á sunnudaginn gerðist nú aldeilis skrýtinn hlutur. Nonni maðurinn hennar Berglindar frænku hringdi í pabba og spurði hann hvort ég væri til í að vinna á mánudaginn í Dogma. Nú, pabbi hringdi í mig og ég, eftir miklar vangaveltur, ákvað að slá til og svo mætti ég á mánudaginn klukkan hálffimm niðrí Dogma og vann til tíu. Þetta var enginn vandi enda bara venjulegur kassi eins og ég hef vanist í Seli og svo bara posi. Þetta var því bara skemmtilegt, hitti fullt af fólki og sá fullt af fólki. Skemmtileg svona jólatraffík.

Í gær var fiskimaturinn ógurlegi. Það þýðir semsagt að bræður pabba og fjölskyldur þeirra koma hingað og við borðum skötu, saltfisk, siginn fisk og siginn silung. Það eina sem ég hef getað borðað af þessu er saltfiskurinn en þar sem hann brást vonum mínum í gær ákvað ég að prófa allar hinar tegundirnar og endaði á því að leita mér huggunar í signa silungnum. Gaman að segja frá því að mér hefur alltaf fundist hann vondur en í gær fannst mér hann góður. Kannski maður sé að þroskast matarlega séð og kannski ég verði farin að borða hákarl, skötu, lifur og úldin egg innan skamms. Hahaha góður!

Ég er að skoða myndir á muninn.is, gamlar og nýjar myndir sem var verið að setja inn og það eru algjörir gimsteinar sem maður rekst á hérna. Ótrúlega fyndin mynd af Eygló og Dagný síðan úr póstkassagerð í fyrra, Svala með fáránlega stóra hárkollu á diskókvöldvökunni í fyrra, rosalega getnaðarlegar myndir af hinum ýmsustu, ælumyndir, myndir frá því þegar MA sigraði Verzlinga í Gettu betur enda eru Verzlingar bara aumingjar og monta sig helst af því að eiga tvær í Nylon (er það eitthvað til að monta sig af?), og svo ein sæt mynd af Böðvari og Oddný síðan á Stiðarvauk núna. Voðalega hugsi eitthvað.

Eins og áður kom fram eru jólin á morgun. Þetta er rosalegt hvað tíminn líður hratt, mér finnst ég vera nýbyrjuð í skólanum. En ekki kvarta ég, óneiónei. En svona í tilefni af því að á morgun eru jólin þá held ég að þetta verði síðasta blogg fyrir þau og af því að ég skrifaði engin jólakort í ár þá fáiði bara jólakveðju á netinu, nema kannski einhverjir útvaldir, þeir fá jólasms frá mér:) Þannig að...

Gleðileg jól og gæfuríkt komandi ár. Takk fyrir árið sem er að líða og sjáumst hress á nýju ári;)

Jólakveðja, Ragnhildur


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 19:39:05 / 24rhs

Jú Jóhanna ég get, vil, ætla og skal

Ég get þetta alveg. Þetta er ekkert mál. Bara 6 dagar. KOMMON. Þetta er ekkert erfitt. Og jújú ég er að tala um það.. Að blogga hvern einasta dag í sex daga. Ég skal.

Það sem hæst ber í mínu lífi síðan ég bloggaði síðast er sennilega þetta: Ég fór í Hagkaup um daginn með mömmu og pabba og þau eru svo ótrúlega sniðug að þau kaupa rosalega oft jólagjafir þegar ég er með þeim. "Ekki kíkja í körfuna, EKKI KÍKJA Í KÖRFUNA!" Neinei ég skal ekkert gera það, en EKKI láta MIG keyra hana útum allt! Svo fékk ég góðan skotstað á pabba, haha snilld. Fleira? Jújú, ég, Tinna og Magnea Freyja fórum á helvíti góðan rúnt um daginn. Aaaaldrei í geiminum hefði mér dottið í hug að þetta mundi gerast! Núhh Sveinbjörn er enn lifandi og lifir góðu lífi. Þá er ég að tala um froskinn, ekki hitt fíbblið. Veit ekki alveg hvernig það verður þegar ég þarf að láta hann frá mér eftir jólafrí, hann er farinn að eiga stað í hjarta mínu. Ókei kannski ekki alveg svona væmið, en samt. Eyglóin mín hélt svo afmælisboð í gær, hún á afmæli eftir viku. Ekkert smá góður matur og ótrúlega kósý kvöld. "Það er svo kósý að hafa kósý kvöld á fm." Æji... Hey! Svo eru bara 6 dagar í Jóhönnu!! Ég get ekki beðið! Í kvöld er svo stefnan sett á Húsavík. Á ball, ég legg nú ekki meira á ykkur. Geðveikt skemmtilegt skilurðu?

En já... Þessu verður maður víst að troða inn, hópþrýstingur er sko ekki bara til í sambandi við áfengi og dóp heldur finnst hann líka á bloggum. Gjöriði svo vel.

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða mynd/lag minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða lykt/bragð minnir mig á þig

4. Ég segi þér eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig & þig

5. Ég segi þér fyrstu minningu mína af þér

6. Ég segi þér hvaða dýr þú minnir mig á þig

7. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef lengi velt fyrir mér

8. Ef þú sérð þetta þá verður þú að setja þetta á bloggið þitt

Dritiði nú nöfnunum ykkar inn og einhverjum skemmtilegum skoðunum í leiðinni. Ég er farin!


» 56 hafa sagt sína skoðun

12.12.2005 14:18:04 / 24rhs

Merkilegur andskoti

Jámaður það er stutt í jólafrí:) Get ekki beðið og vil ekki byrja aftur í skólanum því að þá eru jú blessuð prófin. Ahh já, þvílík sælutilfinning. Næstum eins og þegar ég sá Garðar Thor Cortes í Hagkaup á föstudaginn síðasta. Nei nú lýg ég, tilfinningin fyrir þessum prófum er sko þveröfug við þessa í Hagkaup. Helvítisdjöfuls, ég er ekki frá því að það sé kvíðaköggull að myndast í maganum mínum útaf þessum prófum.

En svona að öðru, bekkjarpartý 2.G var á föstudagskvöldið. Alveg snilldarpartý enda frábær bekkur. Bryndísi vantaði reyndar en hún verður með næst:) Svala var allsstaðar, það er klárt mál! Æji þetta var geggjað...:D Laugardagurinn var líka ofurljúfur, leti allan daginn og svo flipp um kvöldið. Ahahaha Efra-Súper:D

Gærdagurinn var líka góður, við Vallý röltum í allar fatabúðir hérna og höfðum gaman saman. Kvöldmaturinn var góður, ömmumatur er bestur:) Og eigum við eitthvað að fara að ræða rúntinn?! Ahhh gleðigleði eintóm gleði...;) Og jújú vitleysisskapur líka.

Já. Mín besta og uppáhaldsósk hefur ræst. Ég á frosk. Ég lýg því reyndar ekki að ég eigi frosk en hinu lýg ég. Sveinbjörn besti vinur og félagi ákvað að gefa mér froskinn sinn í jólafríinu, ég á að passa hann þangað til hann kemur aftur. Í janúar! Ástæðan fyrir því að hann gaf mér hann? Af því hann vildi ekki fá vondu lyktina af frosknum í bílinn sinn og þess vegna angar herbergið mitt núna. Nú spyrja sig ábyggilega einhverjir af hverju ég hafi ekki bara neitað því að taka hann. Það var af því að ég vissi ekki af þessu kvikindi fyrr en ég kom í hádegishlé áðan og þá var Sveinbjörn næstum kominn til Húsavíkur! Djöfulsinsandsk… Og jájá, á eftir þarf ég að fara niðrí Blómaval og kaupa mat af því fíbblið gleymdi að skilja matinn eftir.

Jæja, höfum þetta ekki lengra núna,

Ragnhildursemáfroskogveitekkihvaðhúnáaðgeraviðhann

hey já... hver verður eiginlega númer 9000?


» 34 hafa sagt sína skoðun

08.12.2005 12:01:27 / 24rhs

dugnaðurinn er semsagt alveg að drepa mig þessa dagana. ég búin að búa til myndasíðu og er búin að slengja árshátíðarmyndunum inn. slóðin er www.picturetrail.com/24rhs , mæli með að fólk skoði enda er þetta myndarfólk á þessum myndum. sjitt þetta var asnalegt, en leyfum þessu að vera. leyfum? leifum? tjahh, nú er ég ekki viss hvernig maður skrifar þetta. anyways, helgin alveg að koma og það verður stuuuuð:) hlakka ógó til skilurru?! þússt omg, ébbarra getiggi beðið!

en jájá, ætlaði nú bara að segja ykkur frá myndasíðunni. aldrei að vita nema það komi fleiri myndir inn einhvern tímann. hey, svo er ný bloggsíða komin í gang. www.blog.central.is/klarlega . þússt gellz í 2.g að bloggz! omg, þetter svo gegg spennó!

æji dettu í skurð asnalega gelgja.


» 15 hafa sagt sína skoðun

05.12.2005 11:18:41 / 24rhs

Helgin?

Helgin? Stelpurnar komu heim í sveit og ágætis helgi tók við. Svona í tilefni af því að ég nenni ekki að skrifa eitthvað hellingslangt ákvað ég að hafa þetta í staðinn svona:

Magnea, Tinna, Dagný, Eygló, Magnea, Arna, Guðjón, ég, snjór, uppgötvun á einu besta lagi sem heyrst hefur, snjóslagur, bílar, spól, ýta, hávaði, söngur, svefngalsi, rassaæði, hræðsla við kött, rise and shine, festingar, reddingar, íþróttahús, sundlaug, heitur pottur, renna á slöngu, snjósleði, blundur, jólasveinar, matur, "viltu gera eitt stórt fyrir mig?", það var lagið, partý og kó, biturleiki, hávaði, mörgæs, "sex? er það ekki eitthvað gott?", ættjarðarlög, kanínan, ógeðisgrettur, myndir, einhver hefur örugglega fengið hiksta, hömp, hjartaáfall og heimsendir, lónið, hiti, akureyrarferð.

Svona var helgin í grófum dráttum, sæluhelgi í Mývatnssveit eins og ég kýs að kalla hana. Takk fyrir þetta stelpur mínar + Guðjón, þetta var snilld:)

Stay black


» 17 hafa sagt sína skoðun